Nálgun

 

  • Við trúum því að leiðin til nýrra lausna snúist um nýja sýn.  Að sjá öðruvísi og að virkja alla bestu eiginleika fólks og samfélags.

 

  • Við trúum því að maðurinn sé skapandi vera sem nýtur sín best í samfélagi við annað fólk.

 

  • Við trúum því að lífið lúti sínum eigin lögmálum og að við náum mestum árangri þegar okkur tekst að vinna með lífinu í stað þess að reyna að koma á það böndum.

 

  • Við trúum því að veröldin gæti verið svo miklu betri og að lykillinn felist í því hvernig við vinnum saman og skipuleggjum okkur, í hópum, félagasamtökum, fyrirtækjum,  stofnunum, sveitarfélögum og samfélögum. 

 

  • Við trúum því að menning og listsköpun höfði til þess sem er sammannlegt.  Tengi saman fólk og skapi næringu og nýja sýn.

 

  • Við trúum því að ein af þeim leiðum sem við getum farið til að stuðla að eigin frelsi og virkja sköpunarkraftinn, sé að opna líkamann og losa um höft, með hreyfingu sem tengir líkama og sál. 

 

  • Við trúum því að stjórnunarhættir nútímans séu á undanhaldi og að æ fleiri stjórnendur þyrsti í nýja nálgun og nýjar leiðir. 
ILDI ehf. | Fagurhóll 8A | 350 Grundarfjörður | Sími +354 438 1700 | ildi@ildi.is | ©2008 - 2012 Ildi