Aðferðir

 

Við lítum á aðferðir eins og lykil.  Þær geta opnað dyr. 

Mestu skiptir þó í hvaða tilgangi er verið að opna dyrnar. 


Í skjóðunni eigum við ýmsar aðferðir sem við notum eftir því sem við teljum árangursríkast hverju sinni. 


Við notum viðurkenndar aðferðir og fundaform og leggjum okkur sérstaklega eftir aðferðum sem stuðla að lýðræðislegri og opinni samræðu og sköpun. 

 

Sem dæmi um viðurkenndar aðferðir sem uppfylla þessi skilyrði eru

 

"Heimskaffi" (World Café)

 

"Opið rými" (Open Space Technology) og

 

"Byggt á því besta" (Appreciative Inquiry). 

   

 

Við sækjum líka í sagnabrunninn og visku náttúru og genginna kynslóða.

 

Sköpun er líkamlegt fyrirbæri og sama hvert verkefnið er, þá getur oft komið sér vel að vera vakandi fyrir því, hvenær þarf að draga djúpt andann til að hreyfa málum eða kyrra þau.  
 

ILDI ehf. | Fagurhóll 8A | 350 Grundarfjörður | Sími +354 438 1700 | ildi@ildi.is | ©2008 - 2012 Ildi