Að sjá öðruvísi
|
Við lítum svo á að hlutverk okkar sé að sinna þjónustu sem leiðir inn nýja sýn og nýja tíma.
Það þýðir að við leitum eftir opinni nálgun um leið og við leyfum okkur að kafa á dýptina.
Við þurfum að sama skapi að hafa góða þekkingu og gott vald á skipulagi og aðferðum sem eru við lýði í sveitarfélögum, fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum.
Við leitumst við að vinna þannig að árangurinn sjáist í raunverulegum og varanlegum breytingum.
meira
|
|
 |
Nálgun
Í lífi okkar og starfi leggjum við okkur fram um að bera virðingu fyrir lífinu og öðru fólki.
Við viljum vinna að verkefnum sem hafa skýran tilgang, skipta þátttakendur máli og geta
stuðlað að örlítið betri heimi.
Lífið er of stutt og of dýrmætt til að bruðla með það!
meira
Aðferðir
Við lítum á aðferðir eins og lykil. Þær geta opnað dyr.
Mestu skiptir þó í hvaða tilgangi er verið að opna dyrnar.
Í skjóðunni eigum við ýmsar aðferðir sem við notum eftir því sem við teljum árangursríkast hverju sinni.
Við notum viðurkenndar aðferðir og fundaform og leggjum okkur sérstaklega eftir aðferðum sem stuðla að lýðræðislegri og opinni samræðu og sköpun.
meira
Fræðsla
Fræðsla er veigamikill þáttur í starfsemi ILDIS.
Við bjóðum upp á fyrirlestra og námskeið á þeim sviðum sem við störfum á.
Við höfum áralanga reynslu af kennslu.
Kennarar á námskeiðum eru starfsmenn ILDIS og frá erlendum samstarfsaðilum okkar.
meira
ILDI ehf. | Fagurhóll 8A | 350 Grundarfjörður | Sími +354 438 1700 | ildi@ildi.is | ©2008 - 2012 Ildi