Sigurborg Kr. Hannesdóttir

sigurborg@ildi.is - sími 866 5527

 

Í vinnu minni gegnum tíðina hef ég haft það að leiðarljósi að öll viðfangsefni snúist um fólk.  Reynslan hefur kennt mér að bestur árangur fæst þegar tekst að virkja fólk og stilla saman strengi til góðra verka. 

 

Undanfarin átta ár hef ég starfað að ýmsum verkefnum á sviði þátttöku almennings.  Ég innleiddi íbúaþing hér á landi og hef stýrt slíkum þingum í sveitarfélögum víða um land.   

 

Menntun

MSc í þróun og skipulagningu ferðamála frá University of Surrey í Bretlandi.

 

BA próf í félagsfræði og félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands. 

 

Stúdentspróf frá Samvinnuskólanum.

 

Hef lokið fyrsta áfanga í faglegum námskeiðum International Association for Public Participation, IAP2.  "Planning for Effective Public Participation".   

 

Atvinna

Áður en ég stofnaði ILDI starfaði ég í sex ár hjá ráðgjafarfyrirtækinu Alta.  Þangað kom ég inn með reynslu mína á sviði þátttöku almennings og stýrði þar margvíslegum samráðs- og þátttökuverkefnum fyrir sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök. 

 

Áður starfaði ég sjálfstætt í nokkur ár og stýrði þá m.a. fyrstu íbúaþingunum sem haldin voru hér á landi.  Á þeim tíma vann ég einnig verkefni með breska fyrirtækinu John Thompson & Partners

 

Undir lok síðustu aldar stýrði ég umhverfisverkefni Egilsstaðabæjar, sem snerist að mestu leyti um að virkja íbúana og stuðla að aukinni umhverfisvitund. 

 

Áður hafði ég stýrt hótelum og þar áður unnið í fiskvinnslu, á bensínstöð, við sundlaugarvörslu og kynnst landbúnaðarstörfum, svo eitthvað sé nefnt.


Kennsla hefur verið veigamikill hluti af mínum starfsferli og má þar nefna kennslu við Grunnskólann á Djúpavogi eftir stúdentspróf og kennslu í ferðaþjónustu við Menntaskólann á Egilsstöðum. 

 

Einnig hef ég kennt námskeið af ýmsum toga, sem miða að eflingu einstaklinga í starfi og persónulegu lífi.

 

Leitin í lífinu

Þekkingu hef ég sótt mér víða utan hins hefðbundna skólakerfis og það er alltaf eitthvað sem togar í mig að halda áfram og dýpka þekkingu mína á lífinu, manneskjunni og sjálfri mér. 

 

Ég hef lokið fyrsta námskeiði af þremur um þátttöku almennings á vegum International Association for Public Participation, auk fleiri námskeiða á því sviði. 

 

Jógakennaranám sótti ég á Kripalu jógamiðstöðina í Massachusetts og lauk einnig námi í Phoenix Rising jógaþerapíu. 

Ég hef leitað út fyrir landsteinana á ýmis námskeið í 5Rytma dansi og lauk haustið 2008, kennaraþjálfun hjá Gabrielle Roth.  Þá hef ég verið í söngnámi og nýt þess mjög að syngja.


Sagnalistin hefur leitt mig víða, bæði til að segja sögur, hlusta og halda námskeið. 

Ég hef unnið við Evrópuverkefni um endurreisn sagnahefðar og sungið og sagt sögur á alþjóðlegri sagnahátíð í Edinborg.

 

Í gegnum árin hef ég tekið virkan þátt í allskyns félagsstarfi, en það sem mér þykir vænst um er starf mitt með Leikfélagi Fljótsdalshéraðs, sérstaklega uppbyggingarstarf með börnum og unglingum. 

 

Heima
Snæfellsnesið er mitt heimasvæði.  Ég er fædd og uppalin í Stykkishólmi og bý nú í Grundarfirði.  Lengst af hef ég búið í litlum bæjum á landsbyggðinni, bjó m.a. í tíu ár á Egilsstöðum.  Í Reykjavík bjó ég í ein fimm ár, auk þess að vera þar í skóla. 

 

Eiginmaður minn er Ingi Hans Jónsson og saman eigum við og rekum ILDI.  Hægt er að ná í mig í sigurborg@ildi.is og í gsm síma 866 5527

ILDI ehf. | Fagurhóll 8A | 350 Grundarfjörður | Sími +354 438 1700 | ildi@ildi.is | ©2008 - 2012 Ildi