Samstarfsaðilar
Við erum talsmenn samstarfs og vitum að þannig fæst mun meiri árangur en með því að hver og einn sitji í sínu horni.
Svo er samvinna líka mikið skemmtilegri og meira skapandi!
Þess vegna höfum við komið á tengslum við fólk og fyrirtæki sem styrkja bakgrunn okkar og gera okkur kleift að veita betri þjónustu.
Samstarfsaðilar okkar uppfylla allir það að vera faglega sterkir á sínu sviði og vera fólk sem við náum góðum tengslum og takti með.
Við byrjum með fáum útvöldum og svo kannski fjölgar þeim síðar.
Dialogue Partners
Dialogue Partners er kanadískt fyrirtæki sem sérhæfir sig í samvinnu, samræðu og þátttöku almennings.
Fyrirtækið leggur áherslu á að með því að tengja saman hagsmunaaðila og virkja þá sem hlut eiga að máli náist betri árangur.
Einn af stjórnendum og eigendum fyrirtækisins, Stephani Roy McCallum, sem gegnt hefur margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir IAP2, International Association for Public Participation.
Vikki Hilton
Vikki Hilton, er kraftmikill fagmaður á sviði þátttöku almennings. Hún kemur frá Bretlandi og stýrir eigin fyrirtæki, Hilton Associates og kennir við Edinborgarháskóla og víðar. Vikki býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu varðandi þátttöku almennings, fundaumsjón og sáttamiðlun. Hún trúir því að það sem stuðli að jákvæðum breytingum sé orka og kraftur hópa og einstaklinga.
Alain Allard
5Rytma kennari og einn af þeim bestu í heimi, ef marka má vinsældir hans í þeim 18 löndum þar sem hann hefur kennt.
Hann hefur unnið með 5Rytmana í 15 ár og hefur verið í stöðugri þjálfun hjá Gabrielle Roth, sem upphaflega þróaði Rytmana.
Hann hefur réttindi til að kenna bæði grunn- og framhaldsstig Rytmanna.
Alain hefur einnig réttindi í UKCP sálfræðimeðferð og hefur stundað Aikido í fjölda ára.
Hann hefur góðan húmor og er ákaflega traustur kennari sem hefur djúpan skilning á mannlegri reynslu.
Hann hefur kennt námskeið hér á landi frá árinu 2000.