ILDI
ILDI er lítið fyrirtæki sem byggir á samanlagðri reynslu og þekkingu hjónanna Sigurborgar Kr. Hannesdóttur og Inga Hans Jónssonar.
ILDI er stofnað til að setja í einn farveg vinnu okkar með einstaklingum, hópum og samfélögum.
ILDI hefur það að leiðarljósi að vinna með lífinu í stað þess að reyna að koma á það böndum, eins og hefur lengst af verið algeng nálgun í stjórnun.
Meira um nálgun hér.
Skrifstofa fyrirtækisins er staðsett í miðbæ Grundarfjarðar.
Auk þess að vinna verkefni á heimaslóðum, bjóðum við þjónustu okkar um allt land.
ILDI, er íslenskt orð yfir súrefni og að sögn þeirra hjá Orðabók Háskólans „nýyrði” frá 19. öld sem er dregið af danska orðinu ilt.
Það hefur því jafnframt tilvísun í orðið eldur.
ILDI, eða súrefni er forsendan fyrir nánast öllu lífi á jörðinni og það er algengast allra frumefna.
Það býr yfir einstökum eiginleika til að tengjast nær öllum öðrum frumefnum.
Það kann að virðast sem hin þrjú starfssvið ILDIS, „Samvinna”, „Sköpun” og „Líkami og sál” séu ólík, en í reynd byggja þau öll á því að einstaklingar, hópar og samfélög nái fram sínu besta, í þjónustu við lífið og sköpunina.