Þjónusta
Almennt Við aðstoðum við að:
- Tengja saman fólk og hagsmunaaðila í mótun og hugmyndavinnu
- Styðja við sköpunarferli í margskonar verkefnum og ferli. Til þess kunnum við ýmsar leiðir sem við klæðskerasníðum fyrir hvert viðfangsefni.
Sýningar
Við bjóðum margvíslega þjónustu við þróun og uppsetningu sýninga, þar sem við veitum aðstoð við að:
- Þróa sýningar og menningarmiðstöðvar, sérstaklega á landsbyggðinni
- Miðla sögu og menningu á lifandi hátt
- Taka þátt í hugmyndavinnu, útfæra sýningar og leita einfaldra og hagkvæmra leiða við uppsetningu
- Sinna fræðslu og fyrirlestrum um þau tækifæri sem felast í menningararfinum
Og í sagnalistinni tökum við þátt í að:
- Standa fyrir og skipuleggja verkefni og námskeið, bæði fyrir börn og fullorðna