Námskeið

Af og til höldum við námskeið í sagnalist og byggjum þar á handbók sem er afrakstur Evrópuverkefnisins Storytelling Renaissance.  Meðal annars höfum við haldið námskeið á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði og víðar um land.

 

Í byrjun árs héldum við sagnanámskeið með 10 og 11 ára börnum úr Grunnskóla Grundarfjarðar.  Námskeiðið var haldið í samvinnu við Sögumiðstöðina og styrkt af Menningarráði Vesturlands. 

 

Auk þess vann Sigurborg með skosku sagnakonunni Claire McNicol í eina viku í Grunnskólanum í Búðardal að sagnaverkefni með flestum bekkjum skólans, árið 2001.

 

ILDI ehf. | Fagurhóll 8A | 350 Grundarfjörður | Sími +354 438 1700 | ildi@ildi.is | ©2008 - 2012 Ildi