7. júní 2010 19:02
Sagnanámskeið og söguslamm

Nú í vor hafa Sigurborg og Ingi Hans sýslað nokkuð við sagnalistina.


Fyrst skal nefna að þau, ásamt Ragnheiði Þóru Grímsdóttur, héldu námskeið um það að nota sögur og sagnalist í starfi með börnum og unglingum.


Námskeiðið var styrkt af Menningarráði Vesturlands og var haldið bæði í Grundarfirði og á Akranesi.  Á myndinni má sjá Sigurborgu með þátttakendum á Skaganum.


Umsagnir um námskeiðið voru ákaflega góðar, t.d. sögðu þátttakendur:  "Skemmtilegt, hvetjandi til góðra verka" og "Frábært námskeið í alla staði!". 


Námskeiðin voru vissulega hvetjandi fyrir okkur og það væri gaman að halda fleiri slík.

 

Fimmtudaginn 3. júní var haldið "Söguslamm" í Hellinum í Fjörukránni í Hafnarfirði, á vegum Félags sagnaþula.  Þar var keppt í því að segja sögur og stigu sjö sagnaþulir á stokk.  Fjórir komust svo í úrslit og voru bæði Sigurborg og Ingi Hans í þeim hópi.  Ingi Hans gerði sér svo lítið fyrir og sigraði keppnina og mun ásamt Ragnheiði Þóru sem var í öðru sæti, vera fulltrúi Íslands á Norrænu söguslammi sem haldið verður í Osló í október. 

 

Á Facebook síðu Félags sagnaþula er hægt að fá upplýsingar um félagið og viðburði sem það stendur fyrir.  Smella hér. 

 

ILDI ehf. | Fagurhóll 8A | 350 Grundarfjörður | Sími +354 438 1700 | ildi@ildi.is | ©2008 - 2012 Ildi