Viðfangsefni

Leiðin að sameiginlegum niðurstöðum á óvissutímum liggur í gegnum samræðu. 

 

 

Okkar sérþekking felst í því að skipuleggja slíka samræðu þegar taka þarf ákvarðanir eða móta stefnu. 

 

 

Við nálgumst verkefni okkar með það að leiðarljósi að:

 

  • Þeir sem taka endanlegar ákvarðanir fái yfirsýn yfir ólík sjónarmið og hagsmuni.
  • Sem flest sjónarmið komi fram í samræðu.
  • Til verði gagnkvæmur skilningur og sameiginleg sýn.

 

Þetta gerum við með faglegri og markvissri nálgun og í verkefnum okkar byggjum við á verklagi, grunngildum og siðareglum alþjóðlegra fagsamtaka á sviði þátttöku almennings, International Association for Public Participation, IAP2.

Sem dæmi um aðstæður þar sem þátttaka almennings skilar betri árangri og haldbærari ákvörðunum, er sameining sveitarfélaga og stofnana og breytingar á forgangsröðun.   

 

Auk fyrri reynslu af umsjón með íbúaþingum og samráðsverkefnum, má nefna: 

 

  •  Verkefnisstjórnun fyrir Ferðaþjónustuklasa í Skaftárhreppi og samstarfsverkefninu "Krakkar ráða för", verkefni um menningartengda ferðaþjónustu fyrir börn. 
  • Aðstoð við stefnumótun í klösum á vegum Vaxtarsamnings Vesturlands, bæði Þekkingar- og Matvælaklasa.  
  • Umsjón með fundum samráðshóps um sjálfbærnivísa fyrir Alcoa Fjarðaál og Landsvirkjun.
  • Umsjón með íbúafundum á Snæfellsnesi undir yfirskriftinni "Snæfellsnes á tímamótum - hamingja í heimabyggð", fyrir "Kvarnir", samstarfshóp á Snæfellsnesi.
  • Umsjón með "Lýðræðiskaffi", samræðufundi í Háskóla Íslands, í samstarfi við stjórnmálafræðideild HÍ og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, Endurmenntun HÍ og Morgunblaðið. 

 

 

 

 

ILDI ehf. | Fagurhóll 8A | 350 Grundarfjörður | Sími +354 438 1700 | ildi@ildi.is | ©2008 - 2012 Ildi