Þjónusta
Við aðstoðum sveitarfélög og ríkisvald við samræðu almennings og hagsmunaaðila við:
- Breytingar á verklagi í átt að virkara lýðræði og gagnsæi.
- Sameiningu og breytta forgangsröðun verkefna.
- Mótun framtíðarsýnar og skilgreiningu tækifæra.
- Að virkja almenning í umbótaverkefnum af ýmsu tagi.
- Námskeiðahald á sviði þátttöku almennings og virkara lýðræðis.
Við skipuleggjum þátttöku- og samvinnuferli, verkstýrum og höfum umsjón með samræðu og fundum.
Við greinum skilaboð þátttakenda og hagsmunaaðila og vinnum frekar úr þeim og fylgjum eftir, allt eftir því hvað við á hverju sinni.
Við aðstoðum við mat á árangri.
Þjónustan getur verið allt frá ráðgjöf í síma og til umsjónar með samræðuferli, fundum og samantekt.