21. febrúar 2012 16:23
Samræða á umhverfisþingi

Umhverfisþing er haldið á vegum umhverfisráðuneytisins annað hvert ár.  Í tíð núverandi ráðherra hefur verið lögð vaxandi áhersla á aðkomu almennings að málum og ákvörðunum.  Því var á umhverfisþingi liðins hausts boðið upp á samræðu um Hvítbók um löggjöf til verndar náttúru Íslands sem nú er lögð til grundvallar heildarendurskoðunar á náttúruverndarlögum.

 

ILDI stýrði umræðum og fór skapandi leiðir í fyrirkomulagi, m.a. með tilvísun í Heimskaffi aðferðina.  Stærð borða og fjöldi í hópi buðu ekki upp á að nota þá viðurkenndu aðferð eftir uppskriftinni, heldur þurfti að útfæra hana.  Það tókst vel og dagurinn skilaði lifandi umræðum og skoðanaskiptum og skýrum skilaboðum frá þeim 300 þátttakendum sem sátu þingið. 

 

Fram kom að útkoma hvítbókar markar þáttaskil og lögð var áhersla á víðtæka kynningu, áframhaldandi samræðu og leit að sátt. 

 

Hér er hægt er að nálgast samantektina í frétt um vinnu við frumvarp til nýrra náttúruverndarlaga á vef umhverfisráðuneytisins.

 

Sjá einnig upptöku frá samræðunum.

meira...
21. febrúar 2012 15:35
Ferðaþjónustan í Vestmannaeyjum sækir fram

Vestmannaeyjar eru einn af þeim stöðum á landinu sem hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn, bæði innlenda og erlenda.  Eyjamenn eru þekktir fyrir að kunna að taka vel á móti stórum hópum, hvort heldur er á hinni einu sönnu Þjóðhátíð eða á fjölmennum íþróttamótum.


Nú er unnið að stofnun ferðaþjónustuklasa með það að markmiði að nýta enn betur sóknarfæri ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum.  Bæjarfélagið átti frumkvæði að verkefninu, en einnig fékkst til þess styrkur frá Vaxtarsamningi Suðurlands.

 

ILDI hefur verkefnisstjórn með höndum og Atvinnuþróunarfélag Suðurlands er bakhjarl verkefnisins.  Haldnir hafa verið þrír fundir í Eyjum og er nú stefnt að formlegum stofnfundi klasa í mars nk.  Verkefnið stendur til ársloka 2012. 
 

meira...
29. mars 2011 13:05
Stefnumótun hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands

ILDI vann á haustdögum 2011 verkefni með Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands þar sem markmiðið var að marka félaginu stefnu með víðtækri samræðu allra sveitarstjórna á Suðurlandi.  Fundurinn fór fram í tengslum við aðalfund í október.

 

Ýmissa breytinga er að vænta hjá félaginu og er m.a. til skoðunar sameining þess og Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, SASS.

 

Samstarfsvettvangur sveitarfélaganna, þar sem unnið er að eflingu atvinnulífs er sérstaklega mikilvægur á þeim tímum sem við nú lifum.  Félag sem þetta þarf að þróast með tímanum, til að hægt sé að ná árangri.  Þess vegna var boðið til samræðunnar. 

 

Hér má finna samantekt ILDIs.

meira...
23. mars 2011 23:43
ILDI á sýningunni "Heimurinn okkar"

Laugardaginn 19. mars síðastliðinn stóð Félag atvinnulífsins í Grundarfirði fyrir sýningunni "Heimurinn okkar".  Þar sýndu á fimmta tug fyrirtækja og félagasamtaka og var ILDI í hópi sýnenda.  Mjög góð aðsókn var að sýningunni og var hún einstaklega vel heppnuð í alla staði.


Eftir daginn höfum við Grundfirðingar verið minnt á hvað hér er margt í boði í atvinnu, þjónustu og félagslífi og að allur barlómur er víðs fjarri!


FAG fær þakkir og hrós fyrir sýninguna. 

meira...
17. mars 2011 15:16
Stór styrkur í kjölfar Eyjaþings

 

Það er ánægjulegt að segja frá því að Framfarafélag Flateyjar hefur fengið 3 milljóna króna styrk frá Ferðamálastofu, vegna úrbóta á ferðamannastöðum.  Þetta var næst hæsti styrkurinn sem veittur var í ár.

 

Með umsókninni fylgdi samantekt um skilaboð Eyjaþingsins sem haldið var síðastliðið sumar og ILDI hafði umsjón með, ásamt Landmótun.  Það leiðir óneitanlega hugann að því að verkefni sem byggja á vandaðri samræðu margra hagsmunaaðila og skýrri sýn eiga meiri möguleika þegar sótt er um styrki. 

 

Til hamingju Flateyingar! 

meira...
24. ágúst 2010 22:21
Eyjaþing haldið í Flatey

Gríðarlega góð þátttaka var í Eyjaþingi sem Framfarafélag Flateyjar stóð fyrir á Hótel Flatey sunnudag 22. ágúst sl. og ILDI hafði umsjón með í samstarfi við Landmótun.  Þingið styrktu m.a. Reykhólahreppur, Breiðafjarðarnefnd, Minjavernd, Sæferðir og Hótel Flatey.

 

Mikil þátttaka og umræða sýndi bæði áhuga og þörf fólks á að ræða málefni Flateyjar og nærliggjandi eyja.  Á þingið mættu ábúendur, eigendur sumarhúsa, sveitarstjórnarfólk og fulltrúar stofnana og ferðaþjónustufyrirtækja.  Rætt var almennt um framtíðarþróun sem og skipulagsmál. 

meira...
22. febrúar 2010 15:09
Grundfirskir atvinnurekendur auka samvinnu

 

Í myndbandi sem finna má á YouTube,   er upplýst að nú safni „Grundfirska mafían“ liði. 

 

Sannleikurinn í málinu er sá að Félag atvinnulífsins í Grundarfirði, vinnur að endurskipulagningu félagsins til að stuðla að gerjun, hugmyndaauðgi, samstarfi og samstöðu meðal atvinnurekenda í Grundarfirði. 

 

Markmiðið er að nýta þau tækifæri sem gefast á breyttum tímum.  Yfirskrift verkefnisins er „Þeir fiska sem róa“ og það er styrkt af Vaxtarsamningi Vesturlands. 

 

ILDI hefur unnið með stjórn félagsins að því að leggja grunn að nýjum áherslum og aukinni virkni.  Það var gert með vinnufundi stjórnar og fimmtudaginn 18. febrúar var haldinn opinn fundur fyrirtækja og annarra áhugasamra. 

 

meira...
14. janúar 2010 18:29
Frétt á forsíðu Global Entrepreneurship Week

Alþjóðleg athafnavika, Global Entrepreneurship Week var haldin í nóvember og stóð þá Landsvirkjun fyrir samráðsfundi í Blöndustöð, í samstarfi við Vaxtarsamning Norðurlands vestra. 

 

ILDI hafði umsjón með fundinum og var yfirskrift hans  „Ný sóknarfæri á Norðurlandi vestra – umhverfi og afurðir“.  Það er trú allra þeirra sem að fundinum stóðu að hann muni skila góðum árangri, ef vel tekst að fylgja honum eftir. 

 

Það er ánægjulegt að segja frá því að nú hefur frétt um fundinn ratað á forsíðu GEW.


Fréttina má sjá hér.

 

 

meira...
ILDI ehf. | Fagurhóll 8A | 350 Grundarfjörður | Sími +354 438 1700 | ildi@ildi.is | ©2008 - 2012 Ildi