Geinar og erindi
Hér er hægt að skoða greinar, erindi og annan fróðleik sem tengist samvinnu og þátttöku almennings.
Greinar um íbúalýðræði
Vikan 13. - 19. október var nú í fyrsta sinn helguð staðbundnu lýðræði innan Evrópu.
Hér er að finna þrjár greinar sem skrifaðar voru af því tilefni.
Íbúalýðræði - hver er reynslan?
Íbúalýðræði - hver er staðan?
Íbúalýðræði - hvert stefnir?
Hér er að finna minnispunkta frá árlegri ráðstefnu samtakanna International Association for Public Participation, sem sýna að æ fleiri þjóðir, stofnanir, sveitarfélög og fyrirtæki telja sig ná betri árangri með því að vinna með íbúum og hagsmunaaðilum.
Einnig að vaxandi áhersla á Samfélagslega ábyrgð fyrirtækja (CSR) er að verða til þess að fyrirtæki eiga nú frekar samræðu við þá sem þau þjóna og þau samfélög þar sem þau starfa.
Allt boðar þetta breytta og lýðræðislegri stjórnunarhætti hjá ríkisvaldi, sveitarstjórnum og í viðskiptalífinu.
Ráðstefnan var haldin í Glasgow dagana 27. - 29. ágúst 2008.
Fyrsta greinin - sem reyndar er á ensku - er í meðfylgjandi pdf útgáfu af maí fréttabréfi International Association for Public Participation, Participation Quarterly. Greinin er á blaðsíðu 9, heitir "Small is Beautiful" og fjallar um þróun þátttöku almennings á Íslandi.
Í blaðinu er einnig að finna fleiri áhugaverðar greinar t.d. um hvernig hægt er að ná til þeirra hópa sem alla jafna eiga sér ekki talsmenn, þegar efnt er til samráðs.