7. júní 2010 19:02
Sagnanámskeið og söguslamm

Nú í vor hafa Sigurborg og Ingi Hans sýslað nokkuð við sagnalistina.


Fyrst skal nefna að þau, ásamt Ragnheiði Þóru Grímsdóttur, héldu námskeið um það að nota sögur og sagnalist í starfi með börnum og unglingum.


Námskeiðið var styrkt af Menningarráði Vesturlands og var haldið bæði í Grundarfirði og á Akranesi.  Á myndinni má sjá Sigurborgu með þátttakendum á Skaganum.


Umsagnir um námskeiðið voru ákaflega góðar, t.d. sögðu þátttakendur:  "Skemmtilegt, hvetjandi til góðra verka" og "Frábært námskeið í alla staði!". 


Námskeiðin voru vissulega hvetjandi fyrir okkur og það væri gaman að halda fleiri slík.

 

Fimmtudaginn 3. júní var haldið "Söguslamm" í Hellinum í Fjörukránni í Hafnarfirði, á vegum Félags sagnaþula.  Þar var keppt í því að segja sögur og stigu sjö sagnaþulir á stokk.  Fjórir komust svo í úrslit og voru bæði Sigurborg og Ingi Hans í þeim hópi.  Ingi Hans gerði sér svo lítið fyrir og sigraði keppnina og mun ásamt Ragnheiði Þóru sem var í öðru sæti, vera fulltrúi Íslands á Norrænu söguslammi sem haldið verður í Osló í október. 

 

Á Facebook síðu Félags sagnaþula er hægt að fá upplýsingar um félagið og viðburði sem það stendur fyrir.  Smella hér. 

meira...
6. maí 2009 16:45
Sagnalist í Grunnskólanum í Grundarfirði

Sögur og sagnalist eru elsta leið mannsins til að læra og miðla þekkingu og reynslu.  Það er því vel við hæfi að vinna sérstaklega með sagnalistina í skólastarfi, sem er orðið algengt víða erlendis og aðeins byrjað að ryðja sér til rúms hér á landi. 

Um þessar mundir er unnið að verkefni um sagnalist í 7. Bekk Grunnskólans í Grundarfirði, í umsjón Sigurborgar Kr. Hannesdóttur og í samstarfi við Sögumiðstöðina.  Umsjónarkennari bekkjarins er Auður Rafnsdóttir.   

 

meira...
4. mars 2009 16:50
Afmæli Barbie

Í tilefni af 50 ára afmæli Barbie, dúkkunnar sem breytti heimsmynd kvenna, verður dagskrá henni til heiðurs í Sögumiðstöðinni Grundarfirði helgina 6-8 mars 2009. Sjá nánar hér.

meira...
28. janúar 2009 16:47
Þróunarverkefni í menningartengdri ferðaþjónustu fyrir börn

Frá Eiríksstöðum
Í þeirri miklu uppbyggingu sem átt hefur sér stað í ferðaþjónustu á Íslandi, hefur stundum gleymst að gera ráð fyrir ferðalöngum af yngri kynslóðinni.  Þetta er þó að breytast og nú nýverið hafa ferðaþjónustufyrirtæki á Vesturlandi fengið styrk til að sinna börnum sérstaklega.  ILDI er með verkefnisstjórnun.   

 

Verkefnið, sem hlotið hefur vinnuheitið Gagn og gaman er þannig til komið að á síðastliðnu sumri var hleypt af stokkunum verkefni um menningartengda ferðaþjónustu á vegum iðnaðarráðuneytis.  Framkvæmd verkefnisins, sem hlaut heitið Gáttir, er í höndum Impru hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands auk þess sem Ferðamálastofa og Háskólinn á Hólum eiga aðild að því.  


 

meira...
27. nóvember 2008 16:40
Sögueyjan 2008 gladdi margt hjartað

Sögueyjan 2008 var alþjóðleg sagnahátíð sem haldin var á Snæfellsnesi dagana 13. - 15. nóvember. 

 

Hingað komu framúrskarandi sagnaþulir frá Noregi, Danmörku, Englandi og Skotlandi og einnig komu fram frábærir íslenskir sagnaþulir. 

 

Allir grunnskólar á nesinu voru heimsóttir og haldnar sagnavökur á Hótel Hellissandi, Narfeyrarstofu í Stykkishólmi og Hótel Framnesi í Grundarfirði. 

Er skemmst frá að segja að hátíðin tókst einstaklega vel! 

meira...
26. júní 2008 15:33
Í Grundarfirði tökum við vel á móti gestum

Nú í sumar munu koma til Grundarfjarðar 13 skemmtiferðaskip og sækja því bæinn okkar heim þúsundir farþega sem reyndar hafa hér mjög skamma viðdvöl.  Sigurborg hefur að undanförnu haft umsjón með fjöllistahópi, sem í eru 6 ungmenni úr "sláttugengi" bæjarins.  Hópurinn tók á móti skipinu Albatros á dögunum og gerði stormandi lukku.
 

meira...
19. maí 2008 13:03
Sagnavaka í Sögumiðstöð

Föstudagskvöldið 16. maí komu hér góðir gestir, níu konur úr Félagi íslenskra sagnaþula.  Félagið er óformlegur vettvangur sagnaþula og komu þessar ágætu konur frá Reykjavík, Akranesi og Fáskrúðsfirði. 

 

Margir heimamenn áttu hér ánægjulega kvöldstund þar sem sagðar voru sögur og sungið.  Ingi Hans var kynnir og á myndinni má sjá þennan föngulega hóp. 

Myndina tók Sverrir Karlsson, sem átti tvær systur í hópnum.

meira...
18. maí 2008 12:32
Ólátagerði - leiksvæði fyrir börn í Sögumiðstöð

Allt frá því uppbygging Sögumiðstöðvar hófst hefur verið opnuð ný deild á hverju ári. 

 

Á þessu verður engin undantekning í ár, en nú verður opnað leiksvæði fyrir börn "Ólátagerði". 

 

Myndin er úr næst nýjustu deildinni, "Þórðarbúð", sem hefur að geyma leikfangasafn frá 6. og 7. áratugnum.

meira...
ILDI ehf. | Fagurhóll 8A | 350 Grundarfjörður | Sími +354 438 1700 | ildi@ildi.is | ©2008 - 2012 Ildi