22. febrúar 2010 15:09
Grundfirskir atvinnurekendur auka samvinnu

 

Í myndbandi sem finna má á YouTube,   er upplýst að nú safni „Grundfirska mafían“ liði. 

 

Sannleikurinn í málinu er sá að Félag atvinnulífsins í Grundarfirði, vinnur að endurskipulagningu félagsins til að stuðla að gerjun, hugmyndaauðgi, samstarfi og samstöðu meðal atvinnurekenda í Grundarfirði. 

 

Markmiðið er að nýta þau tækifæri sem gefast á breyttum tímum.  Yfirskrift verkefnisins er „Þeir fiska sem róa“ og það er styrkt af Vaxtarsamningi Vesturlands. 

 

ILDI hefur unnið með stjórn félagsins að því að leggja grunn að nýjum áherslum og aukinni virkni.  Það var gert með vinnufundi stjórnar og fimmtudaginn 18. febrúar var haldinn opinn fundur fyrirtækja og annarra áhugasamra. 

 


Á fundinn komu 23 einstaklingar, frá hátt á öðrum tug fyrirtækja.  Fundarmenn voru sammála um að endurvekja starfsemi FAG á nýjum, eða kannski öllu heldur upphaflegum forsendum.

 

Rætt var um aðstæður í þjóðfélaginu í dag, erfiðleika í atvinnurekstri, skuldsetningu fyrirtækja og vonleysi.  Þetta sé þó ekki varanleg staða og full ástæða sé fyrir fyrirtækin að auka samstarf bæði til að styrkja sig í vörninni og búa sig undir framtíðina.  Bent var á mikilvægi þess að verksvið félagsins verði skýrt skilgreint, til að væntingar verði raunhæfar.

Í lok fundar fékk hver þátttakandi lítinn minjagrip,  öngul á trékubbi, þar sem á stendur „Þeir fiska sem róa“. 

 
Ákveðið var að koma á reglulegum súpufundum á vegum FAG og verður sá fyrsti næstkomandi þriðjudag 23. febrúar, á veitingahúsinu Kaffi 59.


Niðurstaða fundarins endurspeglast í þessum orðum eins fundarmanna:  „Ef það eykur okkur þor og bjartsýni, þá er það þess virði að fá sér súpu“

 

Til að sjá þessa samantekt með myndum og á pdf, smelltu hér.
 

 

ILDI ehf. | Fagurhóll 8A | 350 Grundarfjörður | Sími +354 438 1700 | ildi@ildi.is | ©2008 - 2012 Ildi