29. mars 2011 13:05
Stefnumótun hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands
ILDI vann á haustdögum 2011 verkefni með Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands þar sem markmiðið var að marka félaginu stefnu með víðtækri samræðu allra sveitarstjórna á Suðurlandi. Fundurinn fór fram í tengslum við aðalfund í október.
Ýmissa breytinga er að vænta hjá félaginu og er m.a. til skoðunar sameining þess og Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, SASS.
Samstarfsvettvangur sveitarfélaganna, þar sem unnið er að eflingu atvinnulífs er sérstaklega mikilvægur á þeim tímum sem við nú lifum. Félag sem þetta þarf að þróast með tímanum, til að hægt sé að ná árangri. Þess vegna var boðið til samræðunnar.
Hér má finna samantekt ILDIs.