20. apríl 2010 11:03
Nýr vefur

Nú höfum við tekið í gagnið nýjan vef, www.dansfyrirlifid.is, sem hefur að geyma allar upplýsingar og fréttir af 5Rytma dansi, jóga og annarri mannrækt á vegum ILDIS. 

 

Um leið breytist póstlistinn og er ekki lengur bundinn við fréttir sem rata inn á vefsíðuna, heldur sendum við tölvupóst beint á póstlista þegar eitthvað er um að vera.  Ef þú vilt fylgjast með áfram, þá getur þú skráð þig á þann póstlista, hér

 

Megir þú dansa, megir þú elska megir þú lifa vel!

 

 

meira...
6. mars 2010 10:39
Maps to Ecstacy - námskeið með Alain Allard í apríl

 

5rytma dans er leið til að endurheimta innri dansarann og leysa úr læðingi þá gleði sem er þér eiginleg.   Dansinn verður leið til að efla hugann, líkamann og sálina, tengjast lífinu og öðru fólki. 

 

Námskeiðið Maps to Ecstacy með Alain Allard, verður í Reykjavík helgina 9. - 11. apríl. 

 

meira...
8. febrúar 2010 16:12
Stundaskrá fyrir 5Rytmana komin á netið

Stundaskráin fyrir 5Rytma dansinn á vorönn 2010 er komin á vefinn. 

 

Næsti tími er sunnudaginn 14. febrúar, kl. 11 - 13, í Kramhúsinu.

 

Boðið er upp á morguntíma á sunnudögum í Kramhúsinu að jafnaði einu sinni í mánuði og einn kvöldtíma á fimmtudegi á Grensásvegi 14, í sal Klassíska listdansskólans. 

 

Við vekjum líka athygli á lengri námskeiðum, "Dans fyrir lífið", með Sigurborgu, sunnudaginn 7. mars í Kramhúsinu og helgarnámskeiðinu "Maps to Ecstacy" með Alain Allard, 9. - 11. apríl, á Grensásveginum.

 

Til að skoða stundaskrána, smelltu hér.

meira...
3. febrúar 2010 01:20
Jóga í Grundarfirði hefst 8. febrúar

 

Ný jóganámskeið hefjast í Grundarfirði mánudaginn 8. febrúar. 

Kennt er á mánudögum og flesta miðvikudaga, í Fjölbrautaskóla Snæfellinga. 

 

Ástundun er kl. 18.00 - 19.15 og er fyrir þá sem hafa áður tekið byrjendanámskeið.

 

Byrjendanámskeið er kl. 19.30 - 21.00. 

 

Miðvikudaginn 10. febrúar er 5Rytma dans, kl. 18 - 20 í Samkomuhúsinu og áherslan er:  "Leikurinn í lífinu". 

 

Nánari upplýsingar og skráning hjá Sigurborgu, sigurborg@5rytmar.is, sími 866 5527.

 

Nánari upplýsingar um dagskrána í Grundarfirði fram að páskum er að finna hér.

 

Einnig er komin ný grein í greinasafnið, "Upp, upp mín sál og allt mitt geð". 

meira...
18. desember 2009 18:00
5Rytmar og jóga á nýju ári

Ljósm. Guðmundur Rúnar
Kæru dansarar og jógar!

Um leið og við óskum ykkur gleðilegra jóla og heillaríks komandi árs, látum við fylgja hér helstu fréttir af því sem er á döfinni á nýja árinu.

 

5Rytmar

Kennt verður í Reykjavík og á Snæfellsnesi.  Ný stundaskrá verður kynnt fljótlega.

 

Fyrsti tíminn verður í Kramhúsinu sunnudaginn 10. janúar, kl. 11 - 13.  Allir velkomnir.

 

Auk reglubundinna tíma verða á vorönninni haldin dagsnámskeið helguð hverjum rytma, flæði, stakkató, kaos, lýrík og kyrrð.

 

Helgarnámskeið með Alain Allard, einum fremsta 5Rytma kennara heims, verður haldið dagana 9. - 11. apríl.

 

Um verslunarmannahelgina verða "Dansbúðir", 5Rytmar, jóga og fleira til að næra líkama og sál.

 

Til að forvitnast meira um 5Rytma dansinn, smelltu hér. 

 

 

Jóga

Laugardagurinn 9. janúar er jógadagur, á vegum Jógakennarafélags Íslands og þá er FRÍTT í jóga.

 

Vertu velkomin(n) í tíma í FSN í Grundarfirði.

  • Kl. 11.00 - 12.15  Létt jóga
  • Kl. 12.30 - 13.45  Karlatími

 

Framhalds- og byrjendanámskeið hefjast svo mánudaginn 8. febrúar.

 

Til að lesa meira um jóga, smelltu hér.

 

Ef þú vilt vera á póstlistanum og fá sendan tölvupóst í hvert sinn sem settar eru nýjar fréttir hér á vefinn, undir "Líkami og sál", geturðu skráð þig hér.

 

meira...
1. september 2009 18:19
5Rytma og jógatímar byrja aftur

Nýjar stundaskrár fyrir jóga og 5Rytma dans eru nú komnar á vefinn.

 

Stundaskrá fyrir jóga

 

Stundaskrá fyrir 5Rytma

 

Opnar kynningar á Snæfellsnesi

Mánudagskvöldið 7. september verður opin kynning í Samkomuhúsinu í Grundarfirði og fimmtudagskvöldið 10. september í sal Tónlistarskólans í Stykkishólmi.

 

Sjá nánar í auglýsingum í svæðisblöðum og í stundaskránum hér fyrir ofan.

 

 

 

meira...
7. júlí 2009 01:22
5Rytmar á Egilsstöðum 10. júlí

 

Föstudaginn 10. júlí verður 5Rytma tími á Hótel Hérað á Egilsstöðum, kl. 17 - 19.

 

Leitt verður í gegnum öldu, flæði, stakkató, kaos, lýrík og kyrrð.

 

Tíminn er öllum opinn.  Verð kr. 2.200.  Athugið að ekki er hægt að greiða með korti. 

 

Ef þú vilt vita meira um 5Rytmana, smelltu þá hér. 

 

Kennari er Sigurborg Kr. Hannesdóttir, sem lokið hefur kennaraþjálfun hjá Gabrielle Roth, sem þróaði Rytmana. 

Meira um bakgrunn Sigurborgar hér.

meira...
4. júní 2009 00:26
Námskeið á Egilsstöðum

Heilsudagar á Héraði
Dagana 11. – 13. júní  stendur Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs fyrir heilsudögum, með tveimur viðburðum, fyrirlestri Sigrúnar Theodórsdóttur ásamt sýningu á heimildarmyndinni The Living Matrix og kynningum og námskeiði í 5Rytma™ dansi, með Sigurborgu Kr. Hannesdóttur.

 

Fimmtudagur 11. júní
Kynning á 5Rytma dansi
Herðubreið á Seyðisfirði, kl. 17 – 18.  Aðgangur ókeypis.  Allir velkomnir!

 

Í 5Rytma dansi gefum við innri dansaranum útrás, losum um hindranir og streitu og endurheimtum orku og kraft.  Dansinn er leið til að verða meira skapandi og lifandi.  

Sigurborg Kr. Hannesdóttir hefur lokið kennaraþjálfun hjá Gabrielle Roth sem þróaði Rytmana og er fyrsti  5Rytma kennarinn hér á landi.

Ef þig langar að vita meira um Rytmana, þá sjá hér og á

http://www.youtube.com/watch?v=xYMdlKWaEEY&feature=related

 

Heilsa, hugarfar og orka
Fyrirlestur Sigrúnar Theodórsdóttur og sýning á heimildarmyndinni The Living Matrix, í Sláturhúsinu-menningarsetri á Egilsstöðum, kl. 20 – 23.  Verð kr. 2.200. 
Sigrún segir þar frá reynslu sinni í að endurheimta heilsuna á ný eftir langvarandi og erfið veikindi.


Heimildarmyndin The Living Matrix fjallar um nýjan skilning á því hvernig mannslíkaminn starfar og hvernig ýmsir vísindamenn hafa með rannsóknum sínum þróað nýjar leiðir til að hjálpa fólki að ná heilsu á ný. 

 

Til að lesa meira um myndina, smelltu hér.


Sjá kynningarmyndband um The Living Matrix á http://www.youtube.com/watch?v=ne-I7JTXCbo


Sigrún býður einnig upp á einkatíma á Egilsstöðum um helgina.  Sjá nánari upplýsingar hér. 


Vinsamlegast skráið þátttöku hjá Ingunni Þráinsdóttur, í síma 899 5715, mmf@egilsstadir.is, fyrir lok miðvikudags 10. júní.

 

Föstudagur 12. júní
Kynning á 5Rytma dansi, Hótel Héraði Egilsstöðum, kjallara, kl. 16.15 – 17.15.  Besta leiðin til að kynnast Rytmunum er að prófa!  Aðgangur ókeypis.  Allir velkomnir!


Laugardagur 13. júní
RÁÐLAGÐUR DAGSKAMMTUR AF DANSI, 5Rytma námskeið á Hótel Héraði, kjallara, kl. 11 – 14.30.  Verð kr. 6.400.

 

Smella hér til að lesa meira um námskeiðið.


Vinsamlegast skráið þátttöku hjá Ingunni Þráinsdóttur, í síma 899 5715, mmf@egilsstadir.is, fyrir lok föstudags 12. júní.


Tilboð á fyrirlestri og 5Rytma námskeiði, kr. 7.300. 

meira...
ILDI ehf. | Fagurhóll 8A | 350 Grundarfjörður | Sími +354 438 1700 | ildi@ildi.is | ©2008 - 2012 Ildi