ILDI vinnur nú að verkefni með Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands og er markmiðið að marka félaginu stefnu með víðtækri samræðu allra sveitarstjórna á Suðurlandi.

 

Haldinn hefur verið undirbúningsfundur með stjórn og næstkomandi fimmtudag er öllum fulltrúum í sveitarstjórnum á Suðurlandi boðið til samráðsfundar á Hótel Hvolsvelli. 

 

Þar gefst bæði þeim sem komu ný inn í sveitarstjórnir síðastliðið vor, sem og þeim sem verið hafa áður, tækifæri til að hafa áhrif á starfsemi og áherslur félagsins.

 

Samstarfsvettvangur sveitarfélaganna, þar sem unnið er að eflingu atvinnulífs er sérstaklega mikilvægur á þeim tímum sem við nú lifum.  Félag sem þetta þarf að þróast með tímanum, til að hægt sé að ná árangri.  Þess vegna er boðið til samræðunnar. 

lesa meira

Laugardaginn 19. mars síðastliðinn stóð Félag atvinnulífsins í Grundarfirði fyrir sýningunni "Heimurinn okkar".  Þar sýndu á fimmta tug fyrirtækja og félagasamtaka og var ILDI í hópi sýnenda.  Mjög góð aðsókn var að sýningunni og var hún einstaklega vel heppnuð í alla staði.


Eftir daginn höfum við Grundfirðingar verið minnt á hvað hér er margt í boði í atvinnu, þjónustu og félagslífi og að allur barlómur er víðs fjarri!


FAG fær þakkir og hrós fyrir sýninguna. 

lesa meira

 

Það er ánægjulegt að segja frá því að Framfarafélag Flateyjar hefur fengið 3 milljóna króna styrk frá Ferðamálastofu, vegna úrbóta á ferðamannastöðum.  Þetta var næst hæsti styrkurinn sem veittur var í ár.

 

Með umsókninni fylgdi samantekt um skilaboð Eyjaþingsins sem haldið var síðastliðið sumar og ILDI hafði umsjón með, ásamt Landmótun.  Það leiðir óneitanlega hugann að því að verkefni sem byggja á vandaðri samræðu margra hagsmunaaðila og skýrri sýn eiga meiri möguleika þegar sótt er um styrki. 

 

Til hamingju Flateyingar! 

lesa meira

Gríðarlega góð þátttaka var í Eyjaþingi sem Framfarafélag Flateyjar stóð fyrir á Hótel Flatey sunnudag 22. ágúst sl. og ILDI hafði umsjón með í samstarfi við Landmótun.  Þingið styrktu m.a. Reykhólahreppur, Breiðafjarðarnefnd, Minjavernd, Sæferðir og Hótel Flatey.

 

Mikil þátttaka og umræða sýndi bæði áhuga og þörf fólks á að ræða málefni Flateyjar og nærliggjandi eyja.  Á þingið mættu ábúendur, eigendur sumarhúsa, sveitarstjórnarfólk og fulltrúar stofnana og ferðaþjónustufyrirtækja.  Rætt var almennt um framtíðarþróun sem og skipulagsmál. 

lesa meira

Nú í vor hafa Sigurborg og Ingi Hans sýslað nokkuð við sagnalistina.


Fyrst skal nefna að þau, ásamt Ragnheiði Þóru Grímsdóttur, héldu námskeið um það að nota sögur og sagnalist í starfi með börnum og unglingum.


Námskeiðið var styrkt af Menningarráði Vesturlands og var haldið bæði í Grundarfirði og á Akranesi.  Á myndinni má sjá Sigurborgu með þátttakendum á Skaganum.


Umsagnir um námskeiðið voru ákaflega góðar, t.d. sögðu þátttakendur:  "Skemmtilegt, hvetjandi til góðra verka" og "Frábært námskeið í alla staði!". 


Námskeiðin voru vissulega hvetjandi fyrir okkur og það væri gaman að halda fleiri slík.

 

Fimmtudaginn 3. júní var haldið "Söguslamm" í Hellinum í Fjörukránni í Hafnarfirði, á vegum Félags sagnaþula.  Þar var keppt í því að segja sögur og stigu sjö sagnaþulir á stokk.  Fjórir komust svo í úrslit og voru bæði Sigurborg og Ingi Hans í þeim hópi.  Ingi Hans gerði sér svo lítið fyrir og sigraði keppnina og mun ásamt Ragnheiði Þóru sem var í öðru sæti, vera fulltrúi Íslands á Norrænu söguslammi sem haldið verður í Osló í október. 

 

Á Facebook síðu Félags sagnaþula er hægt að fá upplýsingar um félagið og viðburði sem það stendur fyrir.  Smella hér. 

lesa meira

Nú höfum við tekið í gagnið nýjan vef, www.dansfyrirlifid.is, sem hefur að geyma allar upplýsingar og fréttir af 5Rytma dansi, jóga og annarri mannrækt á vegum ILDIS. 

 

Um leið breytist póstlistinn og er ekki lengur bundinn við fréttir sem rata inn á vefsíðuna, heldur sendum við tölvupóst beint á póstlista þegar eitthvað er um að vera.  Ef þú vilt fylgjast með áfram, þá getur þú skráð þig á þann póstlista, hér

 

Megir þú dansa, megir þú elska megir þú lifa vel!

 

 

lesa meira

 

5rytma dans er leið til að endurheimta innri dansarann og leysa úr læðingi þá gleði sem er þér eiginleg.   Dansinn verður leið til að efla hugann, líkamann og sálina, tengjast lífinu og öðru fólki. 

 

Námskeiðið Maps to Ecstacy með Alain Allard, verður í Reykjavík helgina 9. - 11. apríl. 

 

lesa meira

 

Í myndbandi sem finna má á YouTube,   er upplýst að nú safni „Grundfirska mafían“ liði. 

 

Sannleikurinn í málinu er sá að Félag atvinnulífsins í Grundarfirði, vinnur að endurskipulagningu félagsins til að stuðla að gerjun, hugmyndaauðgi, samstarfi og samstöðu meðal atvinnurekenda í Grundarfirði. 

 

Markmiðið er að nýta þau tækifæri sem gefast á breyttum tímum.  Yfirskrift verkefnisins er „Þeir fiska sem róa“ og það er styrkt af Vaxtarsamningi Vesturlands. 

 

ILDI hefur unnið með stjórn félagsins að því að leggja grunn að nýjum áherslum og aukinni virkni.  Það var gert með vinnufundi stjórnar og fimmtudaginn 18. febrúar var haldinn opinn fundur fyrirtækja og annarra áhugasamra. 

 

lesa meira

Stundaskráin fyrir 5Rytma dansinn á vorönn 2010 er komin á vefinn. 

 

Næsti tími er sunnudaginn 14. febrúar, kl. 11 - 13, í Kramhúsinu.

 

Boðið er upp á morguntíma á sunnudögum í Kramhúsinu að jafnaði einu sinni í mánuði og einn kvöldtíma á fimmtudegi á Grensásvegi 14, í sal Klassíska listdansskólans. 

 

Við vekjum líka athygli á lengri námskeiðum, "Dans fyrir lífið", með Sigurborgu, sunnudaginn 7. mars í Kramhúsinu og helgarnámskeiðinu "Maps to Ecstacy" með Alain Allard, 9. - 11. apríl, á Grensásveginum.

 

Til að skoða stundaskrána, smelltu hér.

lesa meira

 

Ný jóganámskeið hefjast í Grundarfirði mánudaginn 8. febrúar. 

Kennt er á mánudögum og flesta miðvikudaga, í Fjölbrautaskóla Snæfellinga. 

 

Ástundun er kl. 18.00 - 19.15 og er fyrir þá sem hafa áður tekið byrjendanámskeið.

 

Byrjendanámskeið er kl. 19.30 - 21.00. 

 

Miðvikudaginn 10. febrúar er 5Rytma dans, kl. 18 - 20 í Samkomuhúsinu og áherslan er:  "Leikurinn í lífinu". 

 

Nánari upplýsingar og skráning hjá Sigurborgu, sigurborg@5rytmar.is, sími 866 5527.

 

Nánari upplýsingar um dagskrána í Grundarfirði fram að páskum er að finna hér.

 

Einnig er komin ný grein í greinasafnið, "Upp, upp mín sál og allt mitt geð". 

lesa meira
ILDI ehf. | Fagurhóll 8A | 350 Grundarfjörður | Sími +354 438 1700 | ildi@ildi.is | ©2008 - 2012 Ildi